...eru tengsl á milli skorts á sjálfsgagnrýni og lágrar greindarvísitölu?

föstudagur, desember 07, 2007

Veðurspá

Af þessari gervitunglamynd má sjá djúpa lægð nálgast landið, en á næstu misserum stefnir í vaxandi suðaustanátt og þykknar smám saman upp sunnantil. Lengst af má þó búast við hægviðri í norðri, þó þykkni upp þegar líða tekur á vorið. Gera má ráð fyrir allhvassri suðaustanátt með slyddu eða rigningu, einkum sunnanlands, en snýst í mun hægari þegar líður tekur á sumarið, fyrst sunnantil og loks í norðri þegar daginn tekur að lengja. Útlit er þó fyrir sólríkt og fallegt sumar í júní byrjun.

14 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég færi veðurfræðingum og veðurkerfum vesturhiminsins mínar bestu óskri um sólríkt sumar, heiðríkt haust og stjörnubjartan vetur. Þetta er þá ástæðan fyrir bloggleysinu- en þar sem jólabókaflóðið er í algleymingi þá ætti veðurfræðingurinn að verða sér úti um eintak af bókinni Maður gengur með. Eftir Darra Johansen.
En allt um það, bestu kveðjur á vesturvígstöðvarnar.
Sigga

23:28

 
Blogger Hættulega viðkunnanlegur sagði...

Sæl vinkona,

Takk fyrir kveðjuna, held bara að ég fari að ráðum þínum og verði mér út um þetta rit.

Bestu kveðjur,
JSJ.

05:33

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Sæll kæri bróðir
Innilega til hamingju með afkomandan sem er væntanlegur, ég mæli einnig með riti er kallast "kona með einn i útvíkkun fær enga samúð" :o)

nei svona öllu gríni frá þá er þetta glæsilegt, góð spá fyrir komandi sumar!!

Kveðja, Edda sys

11:42

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ elsku kallinn minn,

Innilega til hamingju með þetta ;-) Ef þig vantar uppeldisráð þá veistu hvert þú getur leitað... hehe ;-)

Knús,
Þórdís

08:25

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

HANN LEITAR TIL MÍN!!!!!!!!!!!!!

00:07

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju :)

13:37

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Vafalaust getur þú leitað til Péturs ef þetta verður drengur - en hann kann ekkert á stelpur, ennþá.

Innilega til hamingju.

Kv. stóra systir

14:19

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

já innilega til hamingju kaddlinn, varla hægt að finna betri mann í hlutverkið :)

16:09

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Yndislegt að fá að vera vitni að afurð síðustu kynferðismaka...yndislegt.

21:09

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

það er ekki um að villast að þeta er jónson/dóttir fer ekki milli mála að hann/hún er með hrygginn þinn

21:12

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Kvitt!
Enn og aftur innilega til hamingju.
Kveðjur neðan úr bæ
adda

21:22

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

... ég hef nú ekki jafn merkilegar fréttir að færa og þú...

Innilega til hamingju Jón Smári!

Kv. Olga

18:51

 
Blogger sigurdur sagði...

Til hamingju kallinn minn.

00:16

 
Blogger Hættulega viðkunnanlegur sagði...

Sæl öll,

Kærar þakkir fyrir kveðjurnar, vænt um þetta.

Þetta verður vonandi ánægjulegt ævintýri að upplifa.

Bestu kveðjur,
Jón Smári

01:26

 

Skrifa ummæli

<< Home