Framboðsfimbulfamb

Já nú á að láta að sér kveða í stúdenta pólitíkinni, en síðuhaldari hefur boðað framboð til formanns félagsstúdenta við Háskólann á Akureyri a.k.a. FSHA. Hef ég bugtað mig fyrir settum reglum kjörnefndar og skilað inn framboðsyfirlýsingu á rafrænum snepli, sjálfsvirðingunni fátækari...
Hvað sem framboðsmálum miðar þá verður maður víst að sinna lærdómnum, set mynd af mér við lestur nýverið.
12 Comments:
Mér líst vel á framboðið. Verst að ég þekki enga kjörgenga til að kjósa þig :-) Reyni að kynnast einhverjum háskólamenum úr HA fyrir þína hönd fyrir kosningar.
Kveðja, stóra sys
13:30
Nú má hann G.Hilmar Haarde fara ad vara sig!!
21:34
Það er nú gott að lærdómurinn sitji nú ekki á hakanum....
12:48
Sérstaklega ekki þegar bókin snýr öfugt eins og sést á þessari glöggu mynd af verðandi formanni FSHA. Það er kannski ekki leiðum að líkjast formaður FSHA = FBNA (forseti bandaríkjanna norður ameríku).
kv
Torfi Jó
00:58
vona að síðasti skilaboðahöfundur sé ekki"opinberlega" í þinni stuðningsfjölskyldu!
en eins og sannum nágranna sæmir mun ég sólunda góðum orðum í þinn garð alla þessa viku til að treysta enn frekar framboð þitt til FSHA.
gangi þér vel...
kveðja Sigga
13:15
Heil og sæl,
Þakka hlý orð í minn garð.
Til þess að gæta alls jafnræðis þá hef ég ákveðið að hreyfa ekki við þeim skilaboðum sem birtast hér, en ég efa ekki að færsla #5 sé af bara til þess að benda á þá fjölbreytnin sem í veraldarvefnum býr.
Frekari upplýsingar um frambjóðendur til setu í FSHA er að finna á www.fsha.is undir lið sem heitir "FSHA kosningar 2006".
Kveðja,
JSJ.
14:18
Er það örugglega hollt fyrir Háskólan á Akureyri að þú formaður. Maður spyr sig ;o)
kv
17:22
Bolsevikarnir höfðu sigurinn af mér.
Nýfrjálhyggju hugmyndirnar mínar seldust ekki eins og heitar lummur á aðalfundinum.
Ég hef svo sem ekki áhyggjur af aðgerðarleysi, ætti að finna eitthvern frið í að sinna náminu á næstu önn, en ég er skráður í 18 einingar þá.
Kveðja,
JSJ
18:15
Interesting website with a lot of resources and detailed explanations.
»
13:47
I say briefly: Best! Useful information. Good job guys.
»
13:47
Your site is on top of my favourites - Great work I like it.
»
14:51
I'm impressed with your site, very nice graphics!
»
15:13
Skrifa ummæli
<< Home