
Andskotans, djöfulsins, helvítis, óværu, gyllinæðis, sárastóttar, stórubólu, kláðalúsar, gubbupestar, hitasóttar, fótaóeirðar, frunsu, kviðslits, blöðrubólgu, berkjubólgu, flogaveikis, dreyrarsýkis, iðrabólgu, kossageitar, æxlis, niðurgangs, nefslímsbólgu, njálgsverkjar og afnotagjalds andskotar!
8 Comments:
Eitthvað segir mér að þú hafir fengið illa séðan póst í dag... ekki satt?
21:33
stundum verður maður bara að borga meðlagið...
00:45
nú þori ég ekki lengur að fara til dyra!!
Ester
09:16
það bönkuðu upp á hjá mér í sumar skuggalegar mægður. Móðirin þreytt með dökka hárrót en rest pissugul. Ásamt dökkri stelpuhnátu, og spurðu hver væri greiðandi að sjónvarpinu hjá mér. Ég gat lítið þrætt fyrst það sást inn í stofu hjá mér. Þetta er bara nauðungaráskrift!!
09:20
Er þá ekki bara spurning um að losa sig við sjónvarpið??? Það ætti kannski að róa taugarnar...
10:16
fnuss...
Það er gróflega brotið á valfrelsi einstaklingsins með gjaldtöku af þessu tagi, m.ö.o. hver og einn ætti að vera fullfær um að taka þá ákvörðun hvar og þá hvort hann/hún vilji vera áskrifandi af slíkum miðli. Að auki ætti slíkur miðill ekki að vera í samkeppni við aðila á einkamarkaði, sem sýnt hafa fram á að hafa miklu meira úrval af efni en ríkismiðillinn mun nokkur tímann koma til með að geta boðið upp á.
En með þessar 3000,00kr á mánuði í huga gæti Hættulega viðkunnanlegur alveg hugsað sér að vera áskrifandi af sjónvarpsstöð í líkingu við Discovery eða stöðva sem bjóða upp á álíka efni.....fyrir töluvert minni fjárhæð!
16:55
......þokkalega ;OP
18:08
Very pretty site! Keep working. thnx!
»
13:47
Skrifa ummæli
<< Home