Mínútumaðurinn, spænski bar eigandinn og ég...
Jæja þá helgin liðin og verð ég að segja að viðunnanlegur hafi bara aldeilis skemmt sér vel! En á föstudaginn komu tveir félagar að sunnan í heimsókn, en stefnan var að nú ætti að nýta helgina í útivist og ferðalög um norðurlandið. Þau plön fóru nú strax í vaskinn er ofdrykkja og skemmtanagleði sunnlendinganna kollvarpaði öllum áætlunum um að nú yrði hreysti og heilbrigði alsráðandi. Tók nú viðkunnanlegur til sinna ráða er í óefni stefni, og hendi sér á gólfið á föstudagskvöldinu og tók að gera armbeygjur að miklum móð til þess að sína hversu vel búseta á norðurlandi hefði leikið sig, en eftir örfáar armréttur fékk viðkunnanlegur dúndrandi hausverk, brjóstsviða, kviðslit, tak í bakið, slæman hálsríg, tognunar einkenni í öxl og verk niður í vinstri handlegg, en síðast nefnda einkennið er víst vísbending um að hjartaáfalls sé að vænta. Braut nú viðkunnanlegur odd af oflæti sínu og félls á hugmyndir og áætlanir sunnlendinganna...Heil sé mínútumanninum og spænska bar eigandanum!!


8 Comments:
Áttu ekki e-r betri mynd af bar eigandanum?
09:38
Hví spænski bareigandinn??
13:27
anonymous svar:
þetta er eina myndin sem tekin var um helgina sem nær rétta "character" bar eigandans!!! ...en þess má geta að myndin er ekki af síðuhaldara!
dísa svar:
hehe... ég var að vonast eftir að myndin svaraði því!! ;)
17:05
jæks, þetta er rosaleg mynd....hef séð okkur sætari ;)
17:57
Já reyndar er það nokkuð augljóst á myndinni, veit ekki hvers vegna ég spurði :)
19:45
Hmm I love the idea behind this website, very unique.
»
15:11
This site is one of the best I have ever seen, wish I had one like this.
»
15:14
What a nice cocksucker, that girl in The grren dress!
19:15
Skrifa ummæli
<< Home