...eru tengsl á milli skorts á sjálfsgagnrýni og lágrar greindarvísitölu?

fimmtudagur, ágúst 03, 2006

)(...?

Nú þegar tímabil iljameina og sólbruna er í rénum hjá síðuhaldara, er ekki úr vegi að snú sér aftur að tíðindafærslum. Hef ég sem sagt skilaði mér að mestu óskaddaður frá reisu okkar mág míns um suðurlandshálendið, en ég mun setja myndir úr ferð minni um Laugarveginn inn innan skamms...

Næsta verkefni sem liggur frami, er að gera eitthvað úr fríhelgi verslunarmanna. Ýmsar hugmyndir eru kreiki, en ekki stendur á mér að framkvæma gleðilega gjörninga að kvöldlagi um landsins sveitir og brúnaþunga þankaganga í dagrenningu.

Járnaður klárinn og lopa hulinn fleygurinn verða til brúks, en að öllum líkum verður stefnan tekin á Ásbyrgi til að hlýða á Sigurrósar menn og konur, er munu troða þar upp á föstudagskvöldinu. Það sem eftir lifir helgi er óráðið, en það mun ráðast af ferðafélögum.

Strax eftir verslunarmannahelgina verður skundað um víðan völl um hálendi Íslands, en jeppaferð er á dagskrá, sem mun enda við Kárahnjúka. Við teljum að nauðsynlegt sé að sjá þær framkvæmdir og það landsvæði sem mun fara undir lónið, en stefnt er á að byrjað verði á að fylla það með haustinu.

Kveðja,

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Jess... Ásbyrgi itt is...

Ég kem með harmoniku, flautuna, nokkrapotta og prik ef okkur skyldi leiðast... þá stofnum við bara nýtt band... já.. rokkband kannski...

17:30

 
Blogger Hættulega viðkunnanlegur sagði...

Glæsilegt... að auki þá hef ég lengi haft áhuga á því að fjárfesta mér í kontrabass... kannski ég láti bara verða af því. Með þeirri hljóðfæraskipan værum við langt komin með að mynda frambærilega hljómsveit.

17:54

 
Blogger Sívar sagði...

Hurru hvenær verður kallin á Kárahnjúkum?

18:19

 
Blogger Hættulega viðkunnanlegur sagði...

Sæll frændi,

Ég geri ráð fyrir því að við verðum á Kárahnjúkasvæðinu sunnudaginn 13. ágúst, ekkert víst í þeim efnum samt sem áður...

Má búast við þér þar um helgina??

Kveðja,

19:41

 
Blogger Sívar sagði...

ég verð viku seinnna á svæðinu. Helgina 18-20 ágúst.

08:24

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég er farin að sakna þín...

06:50

 
Blogger Hættulega viðkunnanlegur sagði...

Og ég þín, en...

ég elska þig,
hvað sem þú kannt
að segja við því.

Ég veit annar sveinn
ást þína fær.
Hvað get ég gert?
Hvað get ég sagt?

við erum eitt.
Ást okkar grandað
aldrei fær neitt.

Þú mátt ekki láta þennan dóna,
þennan fylliraft og róna,
glepja þig.
Þú mátt ekki falla í hans hendur,
oft hann völtum fótum stendur.
Ó, hlustaðu á mig
því ég elska þig...

20:02

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

*snökt*

20:28

 

Skrifa ummæli

<< Home