...eru tengsl á milli skorts á sjálfsgagnrýni og lágrar greindarvísitölu?

fimmtudagur, október 20, 2005

Viðkunnanlegur rakst á þessa forustugrein á Baggalútur.is en hann gat bara ekki stillt sig um að birta hana hér í heild sinni, vona að Baggalúts menn harmi það ekki:

Skelfing sem ég er orðinn þreyttur á tuðinu í þessum kellingum alltaf hreint.
Það er ekki stundlegur friður fyrir endalausu jarmi um launamisrétti, kúgun og og almennt óréttlæti heimsins í garð kvenna. Íslenskra kvenna! Þvílíkur endemis þvættingur.
Yfir hverju hafa íslenskar konur að kvarta? Það er svoleiðis hlaðið undir rassgatið á þessu hérna. Það eru krúsídúllubúðir og hárgreiðslustofur á hverju götuhorni, þær geta valið úr tískublöðum, sjónvarpssápum, fitubrennslunámskeiðum og fæðubótarefnum. Þær fá bæði að kjósa og keyra bíl.
En nei. Íslenskar konur eru kúgaðar. Þeim finnst þær nefnilega ekki fá nógu vel borgað fyrir það sem þær kjósa að kalla sambærileg störf. Sumsé vinnuframlag þegar frá er talin aukavinnan sem þær ekki nenna að vinna - og að því gefnu að þær séu hvorki óléttar - né á túr.
Þetta er bara rugl. Ef konur eru svona óánægðar með laun sín og kjör ættu þær bara að asnast til að skipta um vinnu, ekki satt? En nei, þær láta sko ekki bjóða sér hvað sem er.
Þau fáu störf sem konur á annað borð hafa nennu til að stunda, altsvo þau störf þar sem þær komast auðveldlega úr til að fara í ræktina - og svo í maníkjúr, hafa þær nefnilega markvisst lagt undir sig með frekju og yfirgangi.
Vinnuveitendur neyðast því til að tæla með gylliboðum í þessi sömu 'sambærilegu' störf karlmenn, sem á annað borð þola samvistirnar við andlitsspartslað, dragtklætt kvennagerið.
Og nú rær þetta hyski öllum árum að því að komast í stjórnir fyrirtækja - finnst það bersýnilega hið eftirsóknarverðasta af öllu eftirsóknarverðu.
Stjórnarseta! Annálaðasta letibykkjudjobb sem fyrirfinnst. Jafnvel hörðustu bissníssnaglar breytast við slíka setu á örskotsstundu í forherta kaffiþambara og kjaftatíkur. Vei viðskiptalífi íslensku ef bannsettar kellingarnar komast þangað inn brjóstfalskar og klaufpilsaðar með lattebolla sína og kjaftablöð.
Svo eru þeir sem voga sér að andhæfa þessari óvinveittu yfirtöku kvensniftanna úthrópaðir karlrembufauskar og vændir um steingerða heilastarfsemi. Huh! Sér er nú hver remban. Ekki erum við vesalingarnir með sérstaka karlakirkju, karlréttindafélag Íslands, karlasögusafn eða moðerfokking Rannsóknastofu í karlafræðum!
Það hefðu nú adeilis heyrst skrækir í horni ef við hefðum haldið Karlafund á Þingvöllum síðastliðið sumar. Karlafundur!? Hvað með uppvaskið? Ætlaðir þú ekki að þvo bílinn? Fékkstu ekki að hitta strákana í fyrrasumar?!
---
Annars eru einhverjar lopaklæddar rauðrófur að hvetja kynsystur sínar til að leggja niður störf næstkomandi mánudag.
Bravó! segi ég nú bara. Vonandi verður það til frambúðar.

(Kellingar, 2005).

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Þvílík vonbrigði - ég hélt að litli bróðir myndi sýna konum meiri virðingu en þetta. Verð að taka þig inn á teppið í næstu Vestfjarðaferð.

16:15

 
Blogger Hættulega viðkunnanlegur sagði...

Ég er náttúrulega alveg blásaklaus af hvers konar karlrembu og misrétti, einnig styð ég kellingarnar af fullu hjarta í þeirra baráttu fyrir jafnrétti.
En ég vil einnig nýta tækifærið og óska kynbræðrum mínum notalegs dags á karlafrídeginum, en hann er jú bara einu sinni á ári...

17:08

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

buhuuu :/
ég tek undur með þeirri fyrir vestan, þar sem kvennmenn eru í meirihluta í fjölskyldunni þinni stóri bróðir ættiru að bera meiri virðingu fyrir okkur en þetta:) blásaklaus... my ass

22:04

 
Blogger Hættulega viðkunnanlegur sagði...

jaa, hver andsk.. kannski maður sé búinn að skjóta sig í fótinn, þar sem meiri hluti fjölskyldumeðlima er kvennkyns.

22:40

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

sá svipaðan pistil inná www.landpostur.is

16:56

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

I really enjoyed looking at your site, I found it very helpful indeed, keep up the good work.
»

14:51

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

Your are Nice. And so is your site! Maybe you need some more pictures. Will return in the near future.
»

15:14

 

Skrifa ummæli

<< Home