Evrópumet í svitnun!

Þegar vel var liðið á fjórða dag veikinda, þá taldist Viðkunnanlegum að hann væri búinn að innbyrða um 40 lítra af vatni en aðeins búinn að fara tvisvar á skíthúsið. En eftir margar þanþols prófanir á þvagblöðru Viðkunnanlegs í gegnum tíðina hefur komið alveg skýr niðurstaða, að hún getur innihaldið 7 stóra bjóra og þrjá góða sopa, en þá er þeim öryggismörkum náð sem öruggt er að halda sig fyrir innan ef blaðran á að halda fyrri styrk.
Með þetta að leiðarljósi þá held ég að það sé alveg ljóst að höggvið hefur verið nærri þeim metum sem sett hafa verið í greininni ef ekki bara nýtt met sett í svitnun!!
8 Comments:
Bjórinn sem við höldum á er vissulega stór og það sem meira er, hann var ákaflega bragðgóður og hressandi. Gleðileg svipbrigðin eru jafnframt einlæg og þessu fylgdi sæla sem ágerðist með hverjum sopanum.
Þegar kom svo að því að greiða fyrir veigarnar var okkur félögunum talsvert brugðið. Miðað við álagningu þá grunar mig að þessi mjöður hafi verið unnin úr skírnarvatni frelsarans.
Ekki sem verst að dreypa á drottni, verð ég að segja, og jafnvel enn betra að míga honum.
Gummi
12:26
Þessi umræða hefur kveikt hjá mér mikinn þorsta! Ég þarf greinilega að takmarka lestur minn á þessu bloggi við föstudaga;)
13:06
Hvort kveikir þorstan, bjórinn eða líkamsvessar Jóns Smára?
Gummi
13:33
Gettu ;o)
13:58
Nice colors. Keep up the good work. thnx!
»
13:48
Super color scheme, I like it! Good job. Go on.
»
14:31
What a great site, how do you build such a cool site, its excellent.
»
15:11
Your website has a useful information for beginners like me.
»
15:14
Skrifa ummæli
<< Home