Ábyrgðin knýr dyra...
Nú þegar styttist í að ég og verðandi ferðafélagi stefnum á erlenda grundu, er ekki úr vegi að huga að velferð okkar og öryggi. Ferðinni er heitið á slóðir Baska en þeir eru búsettir á norður Spáni, þó að þeir vilji illa sætta sig við að vera taldir til Spánverja og hafa barist fyrir sjálfstæði sínu síðan.... fyrir löngu!! Fyrst við Guðmundur ætlum að stefna á þessi mið þá er ekki úr vegi ná sér í einhverjar verjur, gegn aðgangshörðum ETA meðlimum og þurftamiklum kvennkyns íbúendum Pyreanafjalla. En stefnan er einmitt sett á smábæ að nafni Torla í miðjum Ordesa þjóðgarðinum. Með þessi orð og athafnir í huga fór viðkunnanlegur á stúfana og varð sér út um Evrópskt sjúkratryggingakort, en íbúandinn við hliðina á mér í klettastígnum sem er 2. barna móður í ofánalag og veit sínu viti, benti mér á þessa skynsamlegu leið. En þess má geta að hún varð sér einmitt út um slíkt kort fyrir stuttu er hún stefndi á fjarlæg mið, eða á reisu til Hríseyjar.
10 Comments:
Glæsilegt... kallinn farinn að blogga:) Lýst vel á þetta hjá þér, nú getur maður fylgst betur með þer:) Flott síða!!
Kveðja Edda.
22:17
...þetta er alveg útpælt hjá okkur Guðmundi!! við þurfum enga regngalla. Þegar það rignir förum við á pöbbinn...
23:15
Bara kominn með síðu og allt! Til hamingju með það (",)
08:44
jæja karlinn loksins er maður að fá einhverjar fréttir af norðan aðrar en uppáferðir þínar.. réttara sagt tilraunir til uppá ferða
12:30
Páll Ernisson á að sjálfsögðu við "fjalla-uppáferðir"...
17:08
Eru aðrar ferðir ekki líka bara skrepp?
14:06
Interesting website with a lot of resources and detailed explanations.
»
13:31
This site is one of the best I have ever seen, wish I had one like this.
»
13:47
Hi! Just want to say what a nice site. Bye, see you soon.
»
13:48
Very pretty site! Keep working. thnx!
»
15:14
Skrifa ummæli
<< Home